Book Creator

Dagskipulag 3 ára

by Hjalli

Cover

Loading...
Dagskipulag
3 ára
Loading...
Loading...
Álfaheiði
Hjalli
Loading...
Deilum gildum okkar til að skapa betri heim
Loading...
Hjalli 2023
Starfsfólk
Starfsfólk
Steinunn Erla
Leikskólakennari
M.ed. í náms-og kennslufræði og deildarstjóri.
Kolbrún Lára
B.Ed. í leikskólakennarafræðum / M.Ed. leikskólakennaranemi
Sunna
leiðbeinandi
Gabriel Eric
leiðbeinandi
Starfsfólk
Mia
Félagsráðgjafi
Jóhanna Berghild
Leikskólakennari
Um deildina
Byrjun dags
Á deildinni eru börn á aldrinum 3-4 ára. Markmið okkar er að börnunum líði vel og reynum við að skapa umhverfi og aðstæður svo þau upplifi traust, öryggi og vellíðan í leikskólanum. Á þessum aldri tekur þroski barna kipp á mörgum sviðum. Málþroski eykst og þau hafa aukna þörf fyrir að segja frá og eiga í samskiptum við aðra, tilheyra hóp og læra ímyndunar- og hlutverkaleiki. Leiðtogar verða til, þau læra að bera ábyrgð á sjálfum sér t.d. við matarborðið og á baðherberginu. Umræða um líðan og tilfinningar er mikilvæg og að viðurkenna tilfinningar sínar. Félagsþroski eykst og breytist á þessum aldri t.d. hvernig þau nálgast hvert annað í leik, hvern þau leika við o.s.frv.

Í leikskólanum upplifa börn gleði, fá að takast á við ögrandi viðfangsefni, læra að deila með sér og leika við aðra, sýna umburðarlyndi, hjálpsemi og bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum.
“Börnin hafa aðgang að skapandi og ögrandi umhverfi, bæði úti og inni, þar sem tækifæri eru til að beita fín- og grófhreyfingum.”
Úr námskrá fyrir 3-4 ára börn í leikskólum Kópavogs.
Byrjun dags
Deildin opnar kl 8:00 og þá er frjáls leikur til 8:30 þegar morgunmatur byrjar. Börnin sækja í rólegri leiki, klippa, líma, teikna, perla o.fl.
“Börnin hafa aðgang að skapandi og ögrandi umhverfi, bæði úti og inni, þar sem tækifæri eru til að beita fín- og grófhreyfingum.”
Úr námskrá fyrir 3-4 ára börn í leikskólum Kópavogs.
Morgunmatur
Sögustund
Morgunmatur er frá kl 8:30 til 9:00. Á mánudögum og fimmtudögum er Cheerios og ávextir og hina dagana er hafragrautur og ávextir.
“Börnin upplifa rólegt og notalegt andrúmsloft.”
Úr námskrá fyrir 3-4 ára börn í leikskólum Kópavogs.
Úr námskrá fyrir 3-4 ára börn í leikskólum Kópavogs.
“Markmið að börnin heyri fjölbreytt og vandað mál. Tjái sig við aðra, taki þátt í samræðum og færi rök fyrir máli sínu.”
PrevNext