Loading...
Rafbækur í stærðfræði og SVAN módelið![](/_next/static/media/shadow-light.2e386fee.png)
![](/_next/static/media/shadow-brighten.a2a9d200.png)
Brynjar M. Ólafsson
Háaleitisskóli - Álftamýri
brynjar.marino.olafsson@rvkskolar.is
Háaleitisskóli - Álftamýri
brynjar.marino.olafsson@rvkskolar.is
Reykjavík, október 2017
Bók þessa má afrita og dreifa að vild :)
Formáli
Þessi "bók" er unnin sem hluti af verkefni í námskeiði í M.Ed. námi í upplýsingatækni og miðlun. Áhuginn fyrir að prófa að útbúa rafbók kviknaði eftir örkynningu á Twitter-spjalli í ágúst sl. Þá fór ég að prófa hvort ég gæti með auðveldum hætti útbúið rafbók og tókst það hjá mér á furðulega stuttum tíma. Í framhaldinu fór ég að velta fyrir mér hvernig hægt væri að nýta rafbækur í kennslu án þess þó að falla beint í þá gryfju að koma bara texta og myndum prentaðrar kennslubókar yfir á rafrænt form.
Þá var mér hugsað til SAMR módelsins sem var sett fram af Dr. Ruben Puentedura en hefur verið þýtt á íslensku af Ingva Hrannari Ómarssyni undir heitinu SVAN módelið. Þar er fjallað um fjögur stig við innleiðingu á tækni í skólastarfi. Í þessari bók reyni ég að sjá fyrir mér hvernig stærðfræðikennsla gæti verið á þessum fjórum stigum.
Þetta er ekki hugsað sem kennslubók í stærðfræði heldur eigin hugleiðingar og kynning á því sem rafbókarformið býður upp á. Vonandi vekur hún áhuga hjá einhverjum fleirum til að prófa rafbækur í kennslu.

![](https://assets.api.bookcreator.com/GiwAjixkYOOj2KRIbm4tZXUpYR22/books/6Yi6LBaLRAyd773KjjLmGA/assets/lR80rLM3TsaAr16JTzy9nQ.jpeg?width=748&height=58)
![](https://assets.api.bookcreator.com/GiwAjixkYOOj2KRIbm4tZXUpYR22/books/6Yi6LBaLRAyd773KjjLmGA/assets/0SQ0-tn2T1-LYuKY8WNwuw.jpeg?width=192&height=577)
SVAN módel er íslensk þýðing á SAMR model, þýtt og sett fram af Ingva Hrannari Ómarssyni. Myndræn framsetning er sótt á heimasíðu Ingva 10. sept 2017 á slóðina: http://ingvihrannar.com/svan-modelid-vid-innleidingu-a-taekni-samr-model/
Á bls. 5 má sjá notkun á rafbók á fyrsta stigi SVAN módels. Rafbókinn er skipt út fyrir hefðbundna bók en hún bætir sáralitlu við það sem áður var.
4
Reiknið
![](https://assets.api.bookcreator.com/GiwAjixkYOOj2KRIbm4tZXUpYR22/books/6Yi6LBaLRAyd773KjjLmGA/assets/9fZKeT1CQxK2qNrN4WYepA.jpeg?width=762&height=635)
5
Á bls. 7 má sjá notkun á rafbók á öðru stigi SVAN módels. Blaðsíðan sýnir dæmi um skil frá nemanda sem hefur þurft að skila svörum inn í rafbók. Uppsetning er að mestu "hefðbundin", nemandi er ekki að nýta sér mikið tæknina að öðru leyti en að birta svör sín rafrænt í stað þess að skrifa í bók.
![](https://assets.api.bookcreator.com/GiwAjixkYOOj2KRIbm4tZXUpYR22/books/6Yi6LBaLRAyd773KjjLmGA/assets/H9YVLVGVRmuahQjAzTDLOw.jpeg?width=194&height=577)
6