Nemendur í 6. og 7. bekk fóru á haustdögum 2020 í strandhreinsun á Fróðárrifi. Þeir stóðu sig virkilega vel og lögðu sig öll fram um að tína saman sem mest af rusli sem á vegi þeirra varð. Verkefnið eflir umhverfisvitund nemenda og þeir leggja því lið að minnka plastmengun í sjó og á landi.