Loading...
Búðir - árgangur 2008Loading...





Farið var á Búðir í samstarfi við Soroptimistaklúbb Snæfellsness þann 23. maí. Nemendur fóru með rútu og með í för var Vilborg Lilja Stefánsdóttir. Á Búðum tóku Ragnhildur Sigurðardóttir umhverfisfræðingur, Þóra Kristín Magnúdóttir og Guðmundur Jensson landvörður á móti okkur. Ragnhildur fræddi nemendur um jarðfræði og sögu Búða og nærumhverfis. Jafnframt tók hún fyrir helstu örnefni í nágrenni við búðir m.a. í tengslum við sögu Axlar-Björns.
Gengið var frá Búðarkirkju út í fremri Búðir svokallaðan efri hring og nemendum sagðar sögur á leiðinni. Þegar gengið var til baka tíndu nemendur rusl í fjörunni frá fremri Búðum að Búðarkirkju.

Að lokinni gönguferð og ruslatínslu buðu Hótel Búðir nemendum í súpu og brauð.

