Book Creator

Dagskipulag 3 ára (hjalli)

by Hjalli

Cover

Loading...
Dagskipulag
3 ára
Loading...
Loading...
Álfaheiði
Loading...
Deilum gildum okkar til að skapa betri heim
Starfsfólk
Steinunn Erla Sigurgeirsdóttir leikskólakennari M.ed. í náms-og kennslufræði og deildarstjóri.
Hrönn Valgeirsdóttir leikskólakennari M.A. í foreldrafræðslu og uppeldisráðgjöf og deildarstjóri.
Guðrún Ósk Lindquist leiðbeinandi, Leikskólabrú FB
Elísabet Ósk Bragadóttir, leiðbeinandi
Guðrún Rósa Björnsdóttir, leiðbeinandi
Á deildinni eru börn á aldrinum 3-4 ára. Markmið okkar er að börnunum líði vel og reynum við að skapa umhverfi og aðstæður svo þau upplifi traust, öryggi og vellíðan í leikskólanum. Á þessum aldri tekur þroski barna kipp á mörgum sviðum. Málþroski eykst og þau hafa aukna þörf fyrir að segja frá og eiga í samskiptum við aðra, tilheyra hóp og læra ímyndunar- og hlutverkaleiki. Leiðtogar verða til, þau læra að bera ábyrgð á sjálfum sér t.d. við matarborðið og á baðherberginu. Umræða um líðan og tilfinningar er mikilvæg og að viðurkenna tilfinningar sínar. Kynjamunur gæti aukist, hvernig þau nálgast hvert annað í leik, hvern þau leika við o.s.frv.

Í leikskólanum upplifa börn gleði, fá að takast á við ögrandi viðfangsefni, læra að deila með sér og leika við aðra, sýna umburðarlyndi, hjálpsemi og bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum.
Byrjun dags
Í byrjun dags er frjáls leikur til 8:30 þegar morgunmatur byrjar. Börnin sækja í rólegri leiki, klippa, líma, teikna, perla o.fl.
“Börnin hafa aðgang að skapandi og ögrandi umhverfi, bæði úti og inni, þar sem tækifæri eru til að beita fín- og grófhreyfingum.”
Úr námskrá fyrir 3-4 ára börn í leikskólum Kópavogur.
Morgunmatur
Það er hafragrautur og ávextir frá kl 8:30-9:00.
“Börnin upplifa rólegt og notalegt andrúmsloft.”
Úr námskrá fyrir 3-4 ára börn í leikskólum Kópavogur.
PrevNext