Loading...
Hvenær varstu sólin?
„Manstu þegar þú skeinst jafn bjart og sólin?“
Varla, ég minni meira á tunglið þessa dagana.
Tungl sem þarf sól til að skína
Og þó, ég veit ekki hver sólin er,
eða hvar ég finn hana
svo, ég skín ekki meira.
Því sko, tíminn bara flaug hjá,
og beið ekki eftir mér,
svo ég sit hérna eftir,
engin sól, engin birta
Bara ég, orðinn að skugga,
gleymdur af tímanum,
sem stóð alltaf með mér,
og leita eftir sólinni,
svo ég fái að skína á ný.
„Manstu þegar þú skeinst jafn bjart og sólin?“
Varla, ég minni meira á tunglið þessa dagana.
Tungl sem þarf sól til að skína
Og þó, ég veit ekki hver sólin er,
eða hvar ég finn hana
svo, ég skín ekki meira.
Því sko, tíminn bara flaug hjá,
og beið ekki eftir mér,
svo ég sit hérna eftir,
engin sól, engin birta
Bara ég, orðinn að skugga,
gleymdur af tímanum,
sem stóð alltaf með mér,
og leita eftir sólinni,
svo ég fái að skína á ný.
Árstíðin mín
Ég sé þig
í stjörnunum þegar
þær skína
eins og demantar
og þegar ég sé norðurljósin dansa hugsa ég um þig.
Það er þess vegna
sem uppáhalds árstíðin mín er vetur,
því með himininn
svartan
er léttara að finna
þig
Ég sé þig
í stjörnunum þegar
þær skína
eins og demantar
og þegar ég sé norðurljósin dansa hugsa ég um þig.
Það er þess vegna
sem uppáhalds árstíðin mín er vetur,
því með himininn
svartan
er léttara að finna
þig
Árstíðin mín
Ég sé þig
í stjörnunum þegar
þær skína
eins og demantar
og þegar ég sé norðurljósin dansa hugsa ég um þig.
Það er þess vegna
sem uppáhalds árstíðin mín er vetur,
því með himininn
svartan
er léttara að finna
þig
Ég sé þig
í stjörnunum þegar
þær skína
eins og demantar
og þegar ég sé norðurljósin dansa hugsa ég um þig.
Það er þess vegna
sem uppáhalds árstíðin mín er vetur,
því með himininn
svartan
er léttara að finna
þig
Oj, bjakk
Stundum
er allt í lagi að sjá rautt.
Það er ótrúlegt ef það gerist aldrei hjá þér.
Þegar veggirnir tala
og þrengja að þér,
þá má fá nóg, og segja stopp.
Svo lengi sem þú passar þig á því
að verða ekki eins og naut
og passar að taka þetta ekki út á
röngu
fólki
þá máttu sjá rautt.
Stundum
er allt í lagi að sjá rautt.
Það er ótrúlegt ef það gerist aldrei hjá þér.
Þegar veggirnir tala
og þrengja að þér,
þá má fá nóg, og segja stopp.
Svo lengi sem þú passar þig á því
að verða ekki eins og naut
og passar að taka þetta ekki út á
röngu
fólki
þá máttu sjá rautt.
Litir segja mér það...
Þegar hárið vex bleikt
veit ég að allt sé í lagi
því ljósara sem hárið er,
því öruggari verð ég.
En dökkni bleika hárið
og fer að vaxa blátt
þá veit ég að það er ekki
allt með felldu.
Þá reyni ég að gleðja hana,
og gef henni tístandi blóm,
mjálmandi smágrís,
geltandi snák,
og syngjandi mús.
En ef ég bregst við of seint,
og hárið verður svart,
þá veit ég að ég hef misst
allt, og kveðja ætti
strax
Þegar hárið vex bleikt
veit ég að allt sé í lagi
því ljósara sem hárið er,
því öruggari verð ég.
En dökkni bleika hárið
og fer að vaxa blátt
þá veit ég að það er ekki
allt með felldu.
Þá reyni ég að gleðja hana,
og gef henni tístandi blóm,
mjálmandi smágrís,
geltandi snák,
og syngjandi mús.
En ef ég bregst við of seint,
og hárið verður svart,
þá veit ég að ég hef misst
allt, og kveðja ætti
strax
Segir himininn satt?
Stundum,
held ég að himininn sé að tala við mig.
Núna í gær, þá sagði hann mér
að ég þekki álf.
Ég skil ekki hver það er,
eða hvernig himininn veit það,
en hann sér allt, svo ég efa hann ekki.
Himininn sagði að álfurinn væri gulur,
og væri alltaf nálægt mér,
og færði mér ró.
Ég veit samt enn ekki hver það er.
En himininn hefur ekki logið ennþá,
svo ég ætla að treysta honum í bili.
Álfurinn vakir líka yfir mér,
og sér til þess að mig dreymir vel.
Stundum,
held ég að himininn sé að tala við mig.
Núna í gær, þá sagði hann mér
að ég þekki álf.
Ég skil ekki hver það er,
eða hvernig himininn veit það,
en hann sér allt, svo ég efa hann ekki.
Himininn sagði að álfurinn væri gulur,
og væri alltaf nálægt mér,
og færði mér ró.
Ég veit samt enn ekki hver það er.
En himininn hefur ekki logið ennþá,
svo ég ætla að treysta honum í bili.
Álfurinn vakir líka yfir mér,
og sér til þess að mig dreymir vel.