Loading...
Veturinn langiLoading...
Veiran
COVID-19, smitið berst,
sameinuð við verðum.
Innilokuð, það er verst,
eins og dýr í gerðum.
Hendur kórónu teygja langt,
upp í fjöll og út í lón.
Fólkið verður þó ekki svangt,
með klósettpappír og hrísgrjón.
Gömlum og sjúkum skulum sinna,
kossum skal bera að verjast.
Veiran okkur mun ei vinna,
ungir, gamlir, berjast.
COVID-19, smitið berst,
sameinuð við verðum.
Innilokuð, það er verst,
eins og dýr í gerðum.
Hendur kórónu teygja langt,
upp í fjöll og út í lón.
Fólkið verður þó ekki svangt,
með klósettpappír og hrísgrjón.
Gömlum og sjúkum skulum sinna,
kossum skal bera að verjast.
Veiran okkur mun ei vinna,
ungir, gamlir, berjast.
Íslenski veturinn
Veturinn langur verður,
vorið kemur ei.
Landinn heldur harðgerður,
„Húh“ á þeirri ey.
Veturinn langur verður,
vorið kemur ei.
Landinn heldur harðgerður,
„Húh“ á þeirri ey.
Annasamur vetur
Napurt úti, Nonni minn,
en nóg er þó að gera.
Fyrir þig ég skóflu finn,
þó fjandi þung að bera.
Napurt úti, Nonni minn,
en nóg er þó að gera.
Fyrir þig ég skóflu finn,
þó fjandi þung að bera.
Frostið
Þegar hvíta fönnin fellur,
fljótt mér verður kalt.
Þá er alltaf einhver skellur,
ef ei er til salt.
Þegar hvíta fönnin fellur,
fljótt mér verður kalt.
Þá er alltaf einhver skellur,
ef ei er til salt.
Dökki dropinn
Er það svart og sykurlaust?
Sérðu ekki bollann?
Drekkum dropann fram á haust,
og dísætan molann.
Er það svart og sykurlaust?
Sérðu ekki bollann?
Drekkum dropann fram á haust,
og dísætan molann.