Loading...
NæturskuggiLoading...
Loading...
Loading...
Andrea StefánsdóttirUpp ég vil
Fer til fjalla glaður
Feykilega hátt
Seigur er sá maður
Sem sigrar tindinn brátt
Fer til fjalla glaður
Feykilega hátt
Seigur er sá maður
Sem sigrar tindinn brátt
Sumarþrá
Ég bíð
Og bíð og bíð og bíð
Í orrahríð
Snjóflygsa úr tilfinningum
Eftir að smjörgul sólin
Klifri eins og vélköttur
Upp á glerhvolfið
Ég bíð
Og bíð og bíð og bíð
Í orrahríð
Snjóflygsa úr tilfinningum
Eftir að smjörgul sólin
Klifri eins og vélköttur
Upp á glerhvolfið
Beðið eftir vori
Skammdegið er soldil raun
Situr í mér kvíði
Guði góðum nú sé laun
Að góan bráðum liði
Skammdegið er soldil raun
Situr í mér kvíði
Guði góðum nú sé laun
Að góan bráðum liði
Vorhretið
Það er allt grátt og hvítt
Þegar litið er útum gluggann
Heimurinn er hulinn himni úr stáli
Sem ekki er hægt að horfa í gegnum
Eins og veggir fangelsis úr vatni
En ég fæ mér bara kaffi meðan ég bíð
Það er allt grátt og hvítt
Þegar litið er útum gluggann
Heimurinn er hulinn himni úr stáli
Sem ekki er hægt að horfa í gegnum
Eins og veggir fangelsis úr vatni
En ég fæ mér bara kaffi meðan ég bíð
Kví kví
Ég er byrgð inni
Í fangaklefa allsnægta
Sem páfagaukur í búri
Með gylltum rimlum
Vegna sóttar
Sem ég er ekki snert af
Og eigra um með svartann hund sálarinnar
Í eftirdragi
Ég er byrgð inni
Í fangaklefa allsnægta
Sem páfagaukur í búri
Með gylltum rimlum
Vegna sóttar
Sem ég er ekki snert af
Og eigra um með svartann hund sálarinnar
Í eftirdragi