Skapandi Hannyrðir
Vor 2022
Vor 2022
Skapandi hannyrðir
Vor 2022
Vor 2022
Dagný Hlín
Loading...
Loading...
HugmyndaborðLoading...
Hugmynd af verkefni
Fyrir mitt fyrsta verkefni langar mig að gera tösku úr gamalli lopapeysu, gömlum bol og útsaumsmynd sem vantar tilgang. Hugmyndina fékk ég upphaflega út frá listformi sem kallast úrgangslist, þar sem rusl eða annað er endurnýtt og notað í allskyns listaverk svo sem málverk og skúlptúra.
Verkefni 1- fyrsta vika
Ég kláraði að sauma innri pokann í töskuna en saumavélin var ekki alveg að vinna með mér (og þeir sem hefðu getað hjálpað mér veðurteptir allstaðar á landinu), svo ég endaði á því að sauma 90% pokans í höndunum. Sem gekk ágætlega og er svo farin að mæla pokann við peysuna og reikna með að vera byrjuð og komin langt með töskuna sjálfa í næstu viku.
Verkefni 1- vika 2
Ég hefði viljað gera meira í þessari viku en vegna covid þá var ég kölluð út í vinnu og hafði því mjög takmarkaðann tíma til að halda áfram. Mér tókst þó að sníða aðra hliðina á töskunni og sauma (tilla) myndinni á þá hlið. Ég er svo byrjuð að sníða hina hliðina og mun ég nota mynstrið og ermarnar af peysunni í hana.
Verkefni 1-vika 3
Í þessari viku kláraði ég að sníða og sauma saman hliðarnar á töskunni. Seinni hliðin var ansi mikill bútasaumur, þar sem ég notaði mynstrið af peysunni og ermarnar í þann hluta. Einnig er ég byrjuð að sauma ramma utan um krossasaumsmyndina sem verður framan á töskunni.
Vegna covid-smits, og þar af leiðandi einangrunar þá hef ég ekki getað gert mikið meira, en reikna með að halda áfram um leið og heilsan leyfir.
Vegna covid-smits, og þar af leiðandi einangrunar þá hef ég ekki getað gert mikið meira, en reikna með að halda áfram um leið og heilsan leyfir.
Myndir á næstu síðu ---->