Tröð
1. bekkur fer reglulega yfir skólaárið í skógræktina Tröð. Nemendur eru fræddir um Tröð, ýmis verkefni eru unnin á staðnum og nemendur fá að upplifa svæðið á sem fjölbreyttastan hátt. Myndir eru teknar reglulega af nemendum við ákveðið tré.
1. bekkur - árgangur 2011
Tröð - sumar
Í haust fóru nemendur í Tröðina og týndu laufblöð sem fallið höfðu af trjánum. Nemendur þurrkuðu og pressuðu laufblöðin.
Tröð - vetur
Hér má sjá vetrarmynd af nemendum. Nemendur fór í Tröðina og við ræddum um snjó, hvað er snjór, hvaðan kemur hann, snjóar alls staðar á hnettinum, af hverju ekki?