Book Creator

Eiríks saga rauða 4

by Una og Diljá

Cover

Loading...
Eiríks saga rauða
Loading...
Loading...
Loading...
Höfundar: Diljá Fannberg Þórsdóttir og
Una Ísadóra Þórarinsdóttir Casadei
1-2 kafli
Auður djúpúðga kemur til Íslands og nemur lönd í Dölunum og nefnir bæinn sinn Hvamm. Hún bjó fyrsta veturinn á Íslandi í Bjarnarhöfn hjá bróður sínum Birni. Auður var kristinnar trúa, en það var ekki algengt á þessum tíma.

Eiríkur rauði flýr frá Noregi vegna vígamála og nemur land á Hornsdröndonum ásamt pabba sínum. Eiríkur giftist konu sem hét Þjóðhildur
og nemur land í Haukadal og nefnir bæinn sinn Eiríksstaði. Vegna vígamála þarf Eiríkur að fara frá Íslandi og er fyrstur til að nema land á Grænlandi.
Comic Panel 1
Orðskýringar
Comic Panel 2
Glumra: Hávær.
Hausakljúfur: Sá sem klýfur hausa.
Ánauðugur: Þræll.
3.Kafli
Guðríður hét dóttir Þorbjarnar og bjó að Laugarbrekku. Hún var hinn mesti skörungur í öllu athæfi og vænst kvenna. Hún fer með foreldrum sínum til Grænlands.
Ástæða þess var að Þorbjörn faðir hennar var blankur og vildi freista gæfunnar í nýju landi. Um þrjátíu manns fóru af stað en lentu í óveðri og tæpur helmingur fórst.
Comic Panel 1
Orðskýringar

Skörungur í öllu athæfi sínu: Dugnaðarforkur og ákveðin.
Leysingi: Þræll sem hlotið hafði frelsi.
Vel hent: Henta vel.
Skartsmaður: Glysgjarn maður.
Nytjumaður: Dugnaðarmaður; Sá sem hefur farnast vel.
Comic Panel 2
Comic Panel 1
Á Grænlandi var hallæri mikið. Þorbjörg var spákona og var kölluð lítil völva. Hún fór í veislur á vetrum og var henni nú boðið til Þorkels bónda til að spá fyrir um hvenær þessum óárni linni. Hún var skrautlega búin. Þorkell leiðir hana til sætis. Þorbjörg segir lítið en um kvöldið er hún spurð út í hvenær hún muni geta veitt svör við spurningum þeim er fyrir hana höfðu verið lagðar. Hún vill sofa um nóttina. Daginn eftir biður hún um konur sem kunna að fremja seiðinn og Varðlokur heita. Engar konur fundust en Guðríður Þorbjarnardóttir kann þessi fræði. Guðríður kveður kvæðið og enginn hafði heyrt það jafn fallega kveðið. Spákonan þakkar henni fyrir og segir að hallærinu taki nú brátt að linna með vorinu. Hún segir við Guðríði að hún muni gjaforð fá á Grænlandi og frá henni muni koma ættibogi mikill. Veðrátta batnaði og Þorbjörn fer um vorið til vinar síns Eiríks. Eiríkur gefur honum land á Stokkanesi og bjó Þorbjörn þar síðan.
4.Kafli
Orðskýringar

Lambskinnskofra = Kollótt húfa.
Seiðhjallinum = Upphækkaður stallur sem seiður var framinn á.
Hafði margar náttúrur hingað að sótt = Þ.e. söngur hennar hafði laðað að marga anda.
Forlög = Örlög.
Skuldalið = Þ.e. þeir sem voru á hans vegum.
PrevNext