Verkefni: Við munum matreiða einfalda og fljótlega rétti, baka brauð og kökur ásamt því að búa til kökupinna. Farið verður yfir almenna næringarfræði og ráðleggingar um gott mataræði.
Hæfniviðmið: Að nemandi: - geti farið eftir leiðbeiningum um hreinlæti og þrif tengdu heimilishaldi og matreiðslu - geti beitt helstu matreiðsluaðferðum og notað til þess ýmis mæli- og eldhúsáhöld - hafi fengið fræðslu um almenna næringarfræði og ráðleggingar um gott mataræði
Námsmat: Einkunn er gefin í bókstöfum og til grundvallar er eftirfarandi; símat og leiðsagnarmat þar sem eftirtaldir þættir eru metnir til jafns: vinnusemi, frumkvæði og sköpun, vandvirkni, samskipti auk þeirra hæfniviðmiða sem talin eru hér að ofan.
Textíll og hönnun Umsjón: Kristína Berman Tímafjöldi: 2 kennslustundir á viku Fjöldatakmörkun: 12 nemendur
Verkefni: Skoðaðar verða fjölbreyttar textílaðferðir og -tækni. Nemendur læra að leita innblásturs við hönnun á verkefnum og hanna sjálf og búa svo til sitt eigið textílverkefni frá grunni.
Nemendur nýta þá tækni sem þau kunna, læra þá tækni sem þau vantar uppá og fá að nýta öll þau tæki og tól sem textílstofan býður uppá við hönnun og gerð verka sinna.