Book Creator

Kennsluleiðbeiningar

by Katrín Hólm, Birta Ethel, María Guðrún, Sigríður Kjaran

Pages 4 and 5 of 61

Kennsluhugmyndir fyrir vísur Vatnsenda-Rósu í tónlistarkennslu yngri barna
Leiðbeinandi bæklingur fyrir starfsfólk leik-og grunnskóla
Birta Ethel Guðbjartsdóttir
Katrín Hólm Árnadóttir
María Guðrún Gunnarsdóttir
Sigríður Kjaran Magnúsdóttir
Tónlist og Tónlistaruppeldi
Háskólinn á Akureyri
2021
Birta Ethel Guðbjartsdóttir
Katrín Hólm Árnadóttir
María Guðrún Gunnarsdóttir
Sigríður Kjaran Magnúsdóttir
Loading...
Doug Goodkin

Kennsluhugmyndirnar í þessari bók eru byggðar á hugmyndum Doug Goodkin í 6. kafla í bók hans Teach it like it´s music. Þessar sex leiðir eru góðar og gagnlegar til að nota í kennslu, hvort sem það er tónlistarkennsla eða önnur kennsla.
Loading...
Einfalt → flóknara
Líkami → hljóðfæri
Einradda → fjölradda
Herma → skapa
Hlustun → skriflegt
Reynsla → hugtök
Loading...
Loading...
Þessi bæklingur er samansafn einfaldra og skemmtilegra hugmynda að tónlistarkennslu með
5-7 ára nemendum.

Við tókum fyrir lagið Vísur Vatnsenda-Rósu sem er þekkt íslenskt þjóðlag svo kjörið væri að hnýta kennsluna við Þorran eða kennslu um Ísland fyrr á öldum.
Hægt er að yfirfæra kennsluaðferðirnar á hvaða þjóðlag sem er.

Aftast í bæklingnum eru frekari skilgreiningar á leiðum Goodkins.
Einfalt - flóknara
Vísur Vatnsenda-Rósu

Eftir að hafa kveikt áhuga nemendanna á íslenskri tónlist fyrr á öldum með umræðum um Þorrann, víkingana og fleiru tengdu. Þá hefjum við söngkennslu á laginu.
Við byrjum á að læra bara, eina línu í einu, í laginu Vísur vatnsenda-Rósu.
Þannig myndi kennarinn syngja fyrstu línuna og svo nemendur endurtaka hana, svona koll af kolli, fyrstu fjórar línurnar í laginu. Næst myndum við endurtaka allar fjórar línurnar í röð öll saman nokkrum sinnum.

Augun mín og augun þín,

(augun mín og augun þín)

ó þá fögru steina.

(ó þá fögru steina)

Mitt var þitt og þitt var mitt,

(mitt var þitt og þitt var mitt)

Þú veist hvað ég meina.

(þú veist hvað ég meina)
Einradda - fjölradda

Þegar allir hafa lært fyrstu fjórar línurnar í laginu og laglínuna þá fyrst höldum við áfram með kennslu á laginu.

Næst gætum við skipt hópnum í tvennt og annar kennarinn sungið í lægri tóntegund með öðrum helmingnum á meðan hinn héldi áfram að syngja í hærri með hinum helmingnum.
Við gætum nýtt tækifærið og sagt frá ,,fimmund" sem er söngstíll sem var notaður fyrr á öldum og sett okkur aðeins í hlutverk íslendinga áður fyrr.

Í áframhaldi höldum við áfram að kenna miðpart lagsins sem er mjög ólíkur fyrri hlutanum sem við höfum þegar lært. Við getum haldið áfram að nota bergmálsaðferðina og syngja þennan part sér án þess að syngja fyrsta partinn.
Langt er síðan sá ég hann,

sannlega fríður var hann.

Allt sem prýða má einn mann,

mest af lýðum bar hann.

Líkami - Hljóðfæri
Í miðhluta lagsins er sterkur taktur, það er því hentugt að börnin hlusti á þann hluta og finni taktinn með því að byrja á því að klappa. Kennari hjálpar nemendum að finna út hvenær á að klappa.
Þegar börnin eru farin að geta klappað í takt við lagið er hægt að nota aðrar hreyfingar (stappa, klappa á læri eða klappa á bringu).

Þegar börnin hafa náð góðum tökum á takti lagsins er hægt að skipta út hreyfingum fyrir hljóðfæri. Fyrir þetta lag er sniðugt að nota trommur, hrisstur eða önnur hljóðfæri sem börnin ættu hugmynd að.

Hægt er að taka verkefnið lengra þar sem verkin skiptast á hópinn, fjórir klappa, fjórir eru með hristur og tveir með trommur til dæmis.
PrevNext